Spánardrósin er...

  • Nafn: Jóna Spánardrós
  • Stađur: Reykjavík
  • Atvinna: Móttökufulltrúi
  • Hjúskaparstađa: Í sambúđ
  • Um mig: Spánardrósin er furđudýr sem ađ býr í gettóinu međ Gunnari, manni sínum og kettinum Jóni Múla. Einnig starfar hún hjá einni skemmtilegustu stofnun landsins međ eđalfólki af bestu gerđ. Hefur hún gaman af ađ bulla annađ slagiđ um ţađ sem á daga hennar drífur og deilir ţví óspart međ fólkinu sínu á bloggi ţessu. Njótiđ vel, elskurnar :-)

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Eftir 19 daga...

10. ágúst 2009 klukkan 14:11
Það er kominn tími á smá blogg. Færslunum fækkar og fækkar hér á blogginu mínu kæra en maður getur nú ekki sleppt því endanlega að blogga!

hjónakornÞað styttist heldur betur í brúðkaupsdaginn okkar Gunnars og hlökkum við mikið til. Það gengur vel að undirbúa allt en samt hef ég alltaf á tilfinningunni að við séum að gleyma einhverju rosalegu...en hvað það er sem er að gleymast hef ég ekki hugmynd um hvað er. Kannski er það ekki neitt. Annars erum við skötuhjú búin að vera svaðalega róleg undanfarið, þrátt fyrir að það sé svona stutt í stóra daginn okkar. Ég bíð bara "spennt" eftir að fara á límingunum nokkrum dögum fyrir brúðkaupið. Hugsið ykkur, eftir 19 daga verð ég orðin Frú Jóna! Wink

Svo er nú bara allt gott að frétta af okkur. Helga og Kristjón eru flutt heim til Íslands eftir fimm ára dvöl á Spáni. Þeim fannst erfitt að koma heim enda hefðu þau haldið áfram að vera í sælunni á Spáni ef að efnahagurinn væri betri. Engu að síður þá finnst þeim ágætt að vera komin á skerið okkar enda fengu þau þetta fína einbýlishús leigt á Selfossi og eru búin að vera að standsetja það áður en að búslóðin kemur úr gám. Fyrstu dagana voru þau hjá okkur og mömmu og var ansi mikið fjör í gettóinu, enda ekki á hverjum degi sem að það flytur inn á mann sex manna fjölskylda. En það var bara notalegt að hafa þau hjá okkur og gott að geta aðstoðað þau með húsnæði fyrstu dagana. Maður hefur nú fengið að gista hjá þeim á Spáni nokkrum sinnum þannig að það var auðvitað sjálfsagt að bjóða þau velkomin í slotið okkar.

Svo tókum við Gunnar okkur smá frí saman í júlí og var það nauðsynlegt fyrir okkur að taka smá breik og slaka á saman. Við höfðum ekki tekið okkur frí saman í um það bil tvö ár og því var alveg tímabært að slaka aðeins á saman. Við fengum lánaðann bústað sem að Hlöðver, kærasti tengdó minnar á og vorum þar í fimm daga í algjörri veðurblíðu og Robin Williamsnotalegheitum. Við tókum smá bíltúra og borðuðum á Lindinni, veitingastað á Laugarvatni sem að við mælum hiklaust með ef að fólk á leið um svæðið, sleiktum sólina og fórum meir'að segja á árabát út á Laugarvatn. Annars var þetta bara algjör afslöppun hjá okkur.

so you think you can danceSvo erum við að reyna að púsla saman brúðkaupsferðinni til Orlando sem að verður samt ekki fyrr en í október. Engu að síður erum við búin að redda okkur miðum á uppistand með Robin Williams og einnig á sýningu með krökkunum úr So You Think You Can Dance en við Gunnar erum miklir aðdáendur þeirra þátta. Svo kemur í ljós hvað við gerum...á maður ekki bara að leika sér í Orlando...? Laughing

Anyways, þetta er orðið ágætt í bili. Ég reyni að henda inn færslu fyrir brúðkaup...nema ég verði farin á límingunum...þá viljið þið ekkert heyra frá mér...

Laterz.
 
Hrafnhildur
æ gaman að lesa bloggið þitt, ég hef sjálf dottið alveg út þar.... Já sæll!!! þetta styttist sko svakalega! Spennó
#1
14. ágúst 2009 klukkan 21:48

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Á döfinni

Klukkan

Veđurskvísan

The WeatherPixie